Fyrsta skóflustungan af Þjóðarhöllinni tekin

Fyrsta skóflustungan að nýrri Þjóðarhöll var tekin í Laugardal í hádeginu í dag. Þar með var stigið stórt skref í átt að nýjum heimavelli íslensku landsliðanna og aðstöðu sem lengi hefur verið beðið eftir.

Höllin mun rísa sunnan við núverandi Laugardalshöll og tengjast bæði henni og Frjálsíþróttahöllinni. Stefnt er að því að mannvirkið verði tilbúið í janúar 2030, ári áður en Ísland verður meðal gestgjafa heimsmeistaramóts karla í handbolta ásamt Danmörku og Noregi.

Bygging Þjóðarhallar markar mikil tímamót fyrir íslenskan handbolta. Landsliðin hafa um árabil leikið heimaleiki sína í Laugardalshöll á undanþágum frá alþjóðlegum kröfum. Með nýju höllinni á að verða til aðstaða sem uppfyllir kröfur alþjóðlegra kappleikja innanhúss.

Þjóðarhöllin verður um 17.700 fermetrar og rúmar 8.600 áhorfendur í sæti. Á tónleikum og öðrum viðburðum verður hægt að taka á móti allt að 12.000 gestum. Auk landsliðanna munu íþróttafélög, skólar og almenningur nýta aðstöðuna.

Íslenskir aðalverktakar og samstarfsaðilar þeirra sjá um hönnun og byggingu hallarinnar. Verksamningur var undirritaður 30. september síðastliðinn og nemur samningsupphæðin 16,825 milljörðum króna með virðisaukaskatti, bundin byggingarkostnaðarvísitölu frá janúar 2026.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top