Íslendingarnir úr leik í bikarnum
Guðmundur Svansson

Íslendingar voru í eldlínunni í kvöld þegar bikarkeppnin hélt áfram í Danmörku. Einnig var leikið í bikarnum í Noregi og í Svíþjóð unnu kvennalið Sävehof góðan útisigur.

Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði fjögur mörk úr átta skotum þar af eitt úr víti fyrir Sävehof þegar liðið vann fimm marka útisigur á Skövde, 22-27. Sävehof eru í öðru sæti deildarinnar með tólf stig af fjórtán mögulegum og eru tveimur stigum á eftir Västerås.

Í Dönsku bikarkeppninni féll TTH Holstebro úr leik eftir tap gegn Fredericia á heimavelli, 29-33. Jóhannes Berg Andrason átti fínan leik fyrir heimamenn en hann skoraði fimm mörk úr sjö skotum og gaf eina stoðsendingu á meðan Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði eitt mark úr þremur skotum.

Rétt eins og í Danmörku var spilað í bikarnum í Noregi en þar mættust Íslendingarnir Tryggvi Þórisson og Sigurjón Guðmundsson þegar lið þeirra Elverum og Sandefjord mættust á heimavelli Sandefjord. Úr varð mikill markaleikur þar sem gestirnir reyndust sterkari og unnu að lokum sex marka sigur, 35-41. Tryggvi skoraði ekki fyrir Elverum á meðan Sigurjón átti ágætan leik í marki heimamanna en hann varði ellefu skot af þeim fjörtíu og tveimur sem hann fékk á sig eða 26% markvarsla.

Úrslit kvöldsins:

Skövde 22-27 Sävehof

TTH Holstebro 29-33 Fredericia

Sandefjord 35-41 Elverum

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top