Þýska stórliðið Füchse Berlin hefur tekið stórt skref í tæknivæðingu félagsins og innleitt gervigreind í daglega starfsemi sína. Forráðamenn félagsins segja tæknina geta sparað starfsmönnum allt að 80–90% af þeim tíma sem áður fór í ákveðin verkefni. Félagið kynnti nýja tækni- og stafræna stefnu sína, F-TECH, á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Google í Berlín í vikunni. Um er að ræða umfangsmikla breytingu á starfsemi félagsins þar sem gervigreind, gagnavinnsla og nýjar stafrænar lausnir eiga að gera Füchse Berlin kleift að nýta betur þann mannafla sem félagið hefur yfir að ráða. Gervigreindin hefur fengið nafnið Anzel og hefur þegar verið tekin í notkun. Hún hefur aðstoðað starfsmenn félagsins frá því í október við ýmis verkefni, meðal annars gerð tilboða, kynninga fyrir samstarfsaðila og skipulagningu leikdaga og viðburða. Christopher Jahns, stjórnarmaður félagsins sem fer með tækni- og sjálfbærnimál, segir að reynslan af nýju tækninni sé afar jákvæð. Að hans sögn hefur gervigreindin þegar sparað starfsmönnum á bilinu 80–90% af þeim tíma sem áður fór í ákveðin verkefni. Paul Drux, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands og núverandi stjórnarmaður Füchse Berlin, leggur þó áherslu á að markmiðið sé ekki að fækka starfsfólki. „Gervigreindin kemur ekki í stað neins hjá okkur. Hún skilar litlu starfsliði aftur þeim tíma sem það þarf til að sinna því sem raunverulega skiptir máli, stuðningsmönnum okkar og samstarfsaðilum,“ segir Drux í tilkynningu félagsins. Gervigreindin byggir á tækni Google Cloud en þýska tæknifyrirtækið Stackwork kemur að uppbyggingu gagnakerfa félagsins. Füchse Berlin hefur gert fimm ára samstarfssamning við fyrirtækið. Tæknivæðingin snýst þó ekki eingöngu um starfsemi skrifstofunnar. Füchse Berlin hyggst einnig kynna nýja heimasíðu og sérstakt smáforrit fyrir stuðningsmenn í desember. Þar verður meðal annars hægt að nálgast miða á leiki, fréttir, tölfræði, upplýsingar um viðburði, getraunir og ýmis tilboð frá samstarfsaðilum félagsins. Allt verður tengt saman í einu kerfi þar sem stuðningsmenn skrá sig inn með sérstöku Füchse-auðkenni. Félagið hyggst jafnframt þróa nýjar lausnir til að efla markaðssetningu einstakra leikmanna og nýta betur vinsældir þeirra á samfélagsmiðlum. Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse Berlin, segir að félagið vilji vera leiðandi í nýsköpun innan handboltans. „Við höfum alltaf verið félag sem gerir hlutina fyrst, í unglingastarfinu, sjálfbærnimálum og nú tækninni. Með F-TECH sýnum við að þetta snýst ekki um stærð heldur hugrekki og að fylgja hlutunum eftir,“ segir Hanning sem telur að stafrænar lausnir geti haft mikil áhrif á rekstur handknattleiksfélaga sem hafa ekki yfir sama fjármagni og stærstu félög annarra íþróttagreina að ráða. Forráðamenn Füchse Berlin leggja jafnframt áherslu á að gervigreindin muni ekki taka ákvarðanir í stað starfsmanna. Hún eigi fyrst og fremst að aðstoða við undirbúning, greiningar og verkefni sem taka mikinn tíma. Það verður áhugavert að fylgjast með hvort fleiri evrópsk handknattleiksfélög fylgi fordæmi Füchse Berlin og taki gervigreind í auknum mæli inn í daglegan rekstur sinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.