Mikil ólga hefur skapast í sænskum handbolta eftir að leikmenn Hammarby birtu myndband af fögnuði sínum í liðsrútu í kjölfar Evrópuleiks í síðustu viku. Í myndbandinu sungu leikmennirnir lag þar sem sænski úrvalsdeildardómarinn Jasmin Kliko var nefndur á nafn. Málið hefur vakið hörð viðbrögð meðal dómara og samkvæmt sænskum fjölmiðlum eru úrvalsdeildardómarar reiðubúnir að fara í verkfall. Myndbandið var birt á Instagram-síðu Hammarby eftir sigur liðsins í Evrópudeildinni. Þar mátti sjá leikmenn fagna í liðsrútunni og syngja lagið „Barbro ifrån Bredäng“, þar sem nafn dómarans Jasmin Kliko kemur fyrir. Það sem hefur vakið sérstaka athygli er að Catrine Loqvist, formaður dómaranefndar sænska handknattleikssambandsins, var einnig í rútunni og sást í myndbandinu. Loqvist starfar jafnframt hjá Hammarby og hefur sú tvöfalda staða hennar orðið að sérstöku ágreiningsefni. Sænska handknattleikssambandið hafði samband við Hammarby eftir birtingu myndbandsins og gerði athugasemdir við það. Félagið fjarlægði myndbandið í kjölfarið. Samkvæmt upplýsingum Handbollskanalen eru sænskir úrvalsdeildardómarar tilbúnir að leggja niður störf vegna málsins. Adam Engström, mótastjóri sænska handknattleikssambandsins, staðfesti að sambandinu hefði borist bréf frá samtökum dómaranna þar sem meðal annars væri gagnrýnt að Loqvist gegndi tveimur hlutverkum. Engström sagði sambandið taka gagnrýnina alvarlega en lagði jafnframt áherslu á að það bæri enn traust til Loqvist sem formanns dómaranefndarinnar. Hann sagðist ekki hafa vitneskju um að verkfall væri yfirvofandi. Loqvist vildi ekki tjá sig um málið þegar Handbollskanalen leitaði eftir viðbrögðum hennar. Hammarby hafði betur gegn franska félaginu St. Raphael í Frakklandi og var fögnuðurinn í rútunni tekinn eftir þann leik. Hammarby stendur vel að vígi í sínum riðli með sex stig, jafn mörg stig og Nexe en Elverum er með fjögur stig. Hammarby fær Elverum í heimsókn á þriðjudaginn og getur tryggt sér sæti í næstu umferð keppninnar með hagstæðum úrslitum í þeim leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.