Danska stórliðið Ikast Håndbold hefur ráðið Kristian Danielsen sem næsta aðalþjálfara kvennaliðs félagsins. Danielsen kemur frá ungverska stórliðinu Ferencváros, þar sem hann starfar sem aðstoðarþjálfari undir stjórn Jesper Jensen, en tekur við Ikast næsta sumar. Þar með er ljóst hver stýrir Elínu Klöru Þorkelsdóttur hjá félaginu á næsta ári en Elín Klara gengur í raðir Ikast frá Savehof næsta sumar. Danielsen er 38 ára gamall og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Ikast sem tekur gildi sumarið 2027. Hann tekur við starfinu af Claus Mogensen, sem lætur af störfum þegar samningur hans við félagið rennur út í lok tímabilsins. Þetta verður í fyrsta sinn sem hann tekur við sem aðalþjálfari félagsliðs. Hann hefur hins vegar aflað sér töluverðrar reynslu sem aðstoðarþjálfari hjá nokkrum af sterkustu kvennaliðum Evrópu. Danielsen hefur áður starfað hjá bæði Odense Håndbold og ungverska stórliðinu Györ en er nú hluti af þjálfarateymi Ferencváros, þar sem hann vinnur með Jesper Jensen, fyrrverandi landsliðsþjálfara Danmerkur. „Ég hlakka gríðarlega til að verða hluti af Ikast Håndbold. Þetta er félag með mikla sögu, metnað og sterkan grunn. Ég sé spennandi möguleika bæði í leikmannahópnum og skipulaginu í kringum félagið,“ sagði Danielsen við heimasíðu Ikast. Hann segist jafnframt hlakka til að vinna með öðrum þjálfurum og starfsfólki félagsins að því að þróa leikmennina og liðið í heild sinni með það að markmiði að ná þeim árangri sem félagið stefnir að. Ikast hefur um árabil verið eitt af sterkustu félagsliðum Danmerkur og reglulegur þátttakandi í Evrópukeppnum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.