Þrír Íslendingar á meðal markahæstu manna í Þýskalandi
(Marco Wolf / dpa Picture-Alliance via AFP)

Þrír Íslendingar eru meðal þrettán markahæstu leikmanna þýsku úrvalsdeildarinnar eftir þrjár umferðir. Ómar Ingi Magnússon er markahæstur í deildinni með 32 mörk þar af 16 mörk úr vítaköstum.

Viggó Kristjánsson leikmaður Erlangen er sjöundi markahæsti með 19 mörk þar af 11 úr vítaköstum og Blær Hinriksson hefur skorað 18 mörk þar af 10 úr vítaköstum.

Gísli Þorgeir Kristjánsson liðsfélagi Ómars Inga hjá Magdeburg hefur síðan skorað 15 mörk en ekkert úr vítaköstum.

Athygli vekur að Daninn, Mathias Gidsel er þriðji markahæstur með 25 mörk og ekkert úr vítaköstum.

Hér að neðan má sjá lista yfir markahæstu leikmenn þýsku úrvalsdeildarinnar eftir þrjár umferðir.

1. Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg – 32 (16)
2. Kai Häfner, TVB Stuttgart – 26 (12)
3. Mathias Gidsel, Füchse Berlin – 25 (0)
4. Marko Grgic, SG Flensburg-Handewitt – 24 (6)
5. Nicolaj Jörgensen, HSV Hamburg – 22 (3)
5. Tim Freihöfer, Füchse Berlin – 22 (13)
7. Ludvig Hallbäck, Frisch Auf Göppingen – 19 (0)
7. Philipp Ahouansou, HSG Wetzlar – 19 (0)
7. Niels Versteijnen, TBV Lemgo Lippe – 19 (0)
7. Noah Beyer, Bergischer HC – 19 (11)
7. Viggo Kristjánsson, HC Erlangen – 19 (4)
12. Karolis Antanavicius, GWD Minden – 18 (0)
12. Blær Hinriksson, SC DHfK Leipzig – 18 (10)
12. Max Beneke, ThSV Eisenach – 18 (3)
12. David More, Rhein-Neckar Löwen – 18 (7)
16. Florian Drosten, MT Melsungen – 17 (16)
17. Stefan Cavor, HSG Wetzlar – 16 (0)
17. Emil Wernsdorf Madsen, THW Kiel – 16 (0)
17. Eloy Morante Maldonado, Bergischer HC – 16 (0)
17. Marcel Schiller, Frisch Auf Göppingen – 16 (9)
21. Max Häfner, TVB Stuttgart – 15 (0)
21. Gisli Kristjansson, SC Magdeburg – 15 (0)
21. Lasse Möller, SG Flensburg-Handewitt – 15 (0)
21. Casper Mortensen, HSV Hamburg – 15 (2)
21. Tim Suton, TBV Lemgo – 15 (0)
21. Milos Vujovic, VfL Gummersbach – 15 (10)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top