Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir ((Baldur Þorgilsson)
Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir verður í eldlínunni í dag þegar Valur mætir Blomberg Lippe í Evrópukeppninni. Hún er í stóru hlutverki hjá Val og yngri landsliðum Íslands. Ásthildur Jóna sýnir á sér bakhliðina í dag. Fullt nafn: Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir Gælunafn: Ásta, einstaka sinnum Astrid Aldur: 19 Hjúskaparstaða: Lausu Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Í janúar 2023 Uppáhalds drykkur: Blár collab Uppáhalds matsölustaður: Saffran Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Gossip girl Uppáhalds tónlistarmaður: Drake og birnir Uppáhalds hlaðvarp: Handkastið Uppáhalds samfélagsmiðill: Það er tiktok Frægasti fylgjandinn þinn á Instagram: Ari Freyr Skúlason Fyrsta verk ef þú yrðir formaður HSÍ: Bæta alla umgjörð í kringum yngri landsliðin Hvað ertu að meðaltali mikið í símanum á dag: Svona 4 tíma Fyndnasti Íslendingurinn: Pétur Jóhann Hvernig hljóma síðustu skilaboðin þín til þjálfarans þíns: Hæ er styrkurinn á sunnudaginn á einhverjum ákveðnum tíma eða bara sjálfar? Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: ÍBV, ekki séns að ég nenni svona oft í herjólf Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Mercedes Castellanos Soanez var rugluð í markinu Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Gústi Jó Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: uff veit ekki Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Camilla Herrem Helsta afrek á ferlinum: Að vinna Evrópubikarinn var sturlað Mestu vonbrigðin: Örugglega að vinna ekki bikarinn í fyrra Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Finnst bara hópurinn flottur eins og er, væri samt ekkert verra að fá Elínu Rósu aftur Efnilegasti handboltamaður/kona landsins: Laufey Helga og Gunnar Róbertsson Besti handboltamaðurinn frá upphafi: Stine Oftedal eða Gidsel Ein regla í handbolta sem þú myndir breyta: Sleppa miðju, langar í fleiri hraðaupphlaup Þín skoðun á 7 á 6: Leiðinlegt bæði að spila og horfa á Hver er þín fyrsta minning af handbolta: Man hvað fyrsta æfingin var ógeðslega skemmtileg, hætti í fimleikum daginn eftir Í hvernig handboltaskóm spilar þú: Er í adidas novaflight en er að fara beint aftur í puma Hvaða þrjá handbolta leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju, og af hverju: Ásrúnu til að veiða í matinn og redda okkur heim, Söru Lind einfaldlega uppá stemninguna og svo Lilju því hún gæti sungið fyrir okkur Hvaða lag kemur þér í gírinn: Stíg á kreik Rútína á leikdegi: Ekkert spes, en tek því bara rólega, fer í göngutúr og borða oftast kanil og rúsínu beyglu með banana Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í Love Island: Gugga væri fullkomin í þetta Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Á nokkra titla í strandhandbolta í Finnlandi Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Kom mer á óvart hvað Elísa er mikið krútt, viðurkenni að ég var pínu hrædd við hana áður en hún kom í Val Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er. Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi biðja um mynd með Ronaldo Eldri bakhliðar: Bakhliðin: Arna Karitas Eiríksdóttir Bakhliðin: Matthildur Lilja Jónsdóttir Bakhliðin: Jökull Blöndal Björnsson Bakhliðin: Skarphéðinn Ívar Einarsson Bakhliðin: Sigurður Dan Óskarsson Bakhliðin: Breki Hrafn Árnason Bakhliðin: Bakhliðin: Lilja Ágústsdóttir Bakhliðin: Ísak Logi Einarsson Bakhliðin: Garðar Ingi Sindrason Bakhliðin: Bakhliðin: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín Bakhliðin: Dagur Árni Heimisson Bakhliðin: Baldur Fritz Bjarnason Bakhliðin: Elín Rósa Magnúsdóttir

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.