Þýskaland ein allra sterkasta þjóð í heimi
Franks Cilius / Ritzau Scanpix via AFP

Íslenska kvennalandsliðið hefur leik á heimsmeistaramótinu á morgun þegar liðið mætir gestgjöfum Þýskalands í Stuttgart klukkan 17:00. Fyrirfram má búast við afar erfiðum leik hjá stelpunum okkar gegn einu sterkasta liði heims í dag.

Rakel Dögg Bragadóttir var gestur í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans í gær og var spurð út í væntingar og stöðuna á liðinu fyrir mótið.

,,Fyrirfram er það stóri úrslitaleikurinn fyrir okkur að komast uppúr riðlinum þegar við mætum Úrúgvæ. Það er þrjú lið sem fara áfram í milliriðla og neðsta liðið fer í Forsetabikarinn sem við unnum á síðasta heimsmeistaramóti. Vonandi verður við það ekki eftir þetta mót.”

,,Þýskaland er ein allra sterkasta þjóð í heimi og þær eru á heimavelli. Það verður rosalega erfiður leikur ég held að það sé alveg nokkuð ljóst. Sama með Serbíu, þær eru alltaf sterkar. Þær eru ekki í topp 8 en það er erfitt að mæta þessum þjóðum. Það ríkir mikil handboltahefð og þetta er sterkt lið,” sagði Rakel Dögg sem benti á að liðið væri í svokölluðum uppbyggingarfasa um þessar mundir.

,,Við erum í ákveðinni vegferð með nýtt lið. Það eru fullt af reynslu litlum leikmönnum sem eru að taka stærra hlutverk og sérstaklega varnarlega. Við höfum verið í veseni að ná varnarleiknum góðum,” sagði Rakel Dögg en var ánægð með sigur liðsins gegn Færeyjum í æfingaleik síðasta laugardag sem gaf góð fyrirheit fyrir mótið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top