
Henny Ella Reistad (JOHN THYS / AFP)
Undanúrslitin á heimsmeistaramóti kvenna voru leikin í Rotterdam í Hollandi í dag. Fyrirfram var gert ráð fyrir öruggum sigrum Frakklands og Noregs og gert ráð fyrir að endurtekning yrði frá úrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu fyrir tveimur árum þegar Frakkland hafði betur gegn Noregi. Annað kom þó á daginn því Þjóðverjar gerðu sér lítið fyrir og unnu franska liðið sem einhverjir vildu meina að hafi tapað viljandi gegn Hollandi í milliriðlinum til að komast hjá því að mæta Noregi í undanúrslitum. Noregur vann Holland í seinni undanúrslitaleiknum með tíu mörkum, 35-25. Þýskaland hafði undirtökin í leiknum allt frá því í stöðunni 4-4 og náðu mest fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik 10-6. Antje Döll fór mikið í markaskorun Þýskalands í leiknum og skoraði fimm af níu mörkum sínum í fyrri hálfleik. Frakkland náði aldrei að brúa bilið sem Þjóðverjar bjuggu til í fyrri hálfleik. Þýskaland sigldi sigrinum sannfærandi í höfn og vann að lokum sex marka sigur 29-23. Emily Bölk og Viola Leuchter voru næst markahæstar þýska liðsins með fimm mörk hvor. Lenda Grandveau og Sarah Bouktit voru markahæstar í liði Frakklands með fimm mörk hvor. Katharina Filter varði ellefu skot í marki Þýskalands og var með 32% markvörslu. Í seinni undanúrslitaleiknum hafði Noregur betur 35-25 eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik 18-14. Frábær stemning var í höllinni og voru heimakonur í Hollandi vel studdar af sínum áhorfendum allan leikinn, það dugði þó ekki til. Henny Reistad fór mikinn í leiknum og skoraði sjö af 18 mörkum Noregs í fyrri hálfleik en Henny Reistad skoraði alls tíu mörk í leiknum og var markahæst. Estavana Polman og Dione Housheer voru markahæstar í liði Hollands með sex mörk hvor. Noregur hafði mikla yfirburði í leiknum og voru þær hollensku aldrei líklegar að valda einum né neinum usla í leiknum. Úrslitaleikur Þýskalands og Noregs fer fram á sunnudaginn en fyrr um daginn mætast Frakkland og Holland.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.