Tæknileg vandræði settu svip sinn á þing IHF í Kaíró
Ayman Aref / NurPhoto via AFP)

Tæknileg vandræði trufluðu þing Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF sem fram fór í Kaíró í Egyptalandi í dag. Þrátt fyrir hnökra í framkvæmdinni var Hassan Moustafa endurkjörinn forseti sambandsins með miklum yfirburðum.

Samkvæmt heimildum TV 2 Sport í Danmörku var atkvæðagreiðslan fyrir endurkjör Moustafa fyrir áhrifum af alvarlegum tæknilegum vandamálum sem gerðu tugum fulltrúa erfitt að fylgjast með gangi mála í salnum. Þar er sagt að rúmlega 40 fulltrúar af þeim 176 sem voru á þinginu heyrðu lítið sem ekkert af því sem fram fór á þinginu. Var þeim bent á að fylgjast með, í gegnum síma sinn meðan á þinginu stóð. 

Þrátt fyrir hnökra í framkvæmd atkvæðagreiðslunnar hlaut Moustafa, sem er 81 árs gamall og frá Egyptalandi, yfirgnæfandi endurkjör. Hann fékk 129 atkvæði af 176 mögulegum og mun áfram leiða IHF á næstu fjögur árin í það minnsta.

Moustafa hefur starfað sem forseti IHF í áratugi en hann fékk mótframboð í dag í fyrsta skipti síðan árið 2009 sem Moustafa fær mótframboð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top