Óðinn Þór fór á kostum þegar Kadetten varð bikarmeistari
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen urðu í kvöld bikarmeistarar í Sviss þegar þeir unnu Pfadi Winterthur í bikarúrslitum 26-29.

Það er óhætt að segja að Óðinn Þór hafi farið á kostum en hann skoraði 11 mörk í úrslitaleiknum og þar af 4 úr vítaköstum.

Kadetten leiddi allan leikinn og voru til að mynd 11-14 yfir í hálfleik svo sigurinn var nokkuð öruggur.

Kadetten Schaffhausen varði því bikarmeistarartitilinn sinn en þeir unnu bikarinn einnig í fyrra.

Óðinn Þór kemur því sjóðandi heitur inn í landsliðið en hópurinn hittist á nýju ári til að undirbúa sig undir Evrópumótið sem hefst 16.janúar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top