Simen Lyse (Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP)
Norski landsliðsmaðurinn, Simen Lyse leikmaður norska úrvalsdeildarfélagsins Kolstad skrifaði nýverið undir samning við franska stórliðið Paris Saint Germain og gengur í raðir félagsins næsta sumar. Nú er hinsvegar orðrómur uppi um að hann gæti yfirgefið Kolstad strax í janúar og eru tvö lið sögð vera á eftir honum. Paris Saint Germain eru sagðir vilja fá leikmanninn strax í janúar en auk þess er ungverska stórlið Veszprém sagt hafa áhuga á að fá Lyse til sín í janúar á sex mánaða samningi. Simen Lyse verður í eldlínunni með norska landsliðinu á heimavelli á Evrópumótinu í janúar. Það er RThandball sem greinir frá orðróminum á Instagram síðu sinni. Kolstad er í miklum fjárhagsvandræðum og gæti það verið stór þáttur í því að félagið neyðist til að losa Lyse af samningi strax í janúar fái félagið gott tilboð í hann.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.