
Ísland (Jonathan Nackstrand / AFP)
Handkastið gerði upp Evrópumótið í uppgjörsþætti sínum um helgina en Danir tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn eftir sigur á Þjóðverjum. Króatía tók síðan bronsið eftir eins marks sigur á Íslandi. Farið var um víðan völl í uppgjörsþætti Handkastsins og að sjálfsögðu var rætt um RÚV og þeirra umfjöllun á mótinu. ,,Ég vil bæði hrósa og lasta RÚV fyrir sína umfjöllun á Evrópumótinu. Þetta er 3-4 stórmótið í röð þar sem Óli Stef er kóngurinn í janúar og Logi og Kári og koma síðan á eftir honum. En ég meina, í Þýskalandi fyrir tveimur árum var Logi Geirsson úti í Þýskalandi. Maður veltir fyrir sér, Ísland er í undanúrslitum og það er ekki einn sérfræðingur úti. Að við skulum ekki vera að nýta þessar kanónur sem við eigum til að vera með einn sérfræðing úti á svæðinu,” sagði Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins. Honum var ekki skemmt að 20 mínútum fyrir leik Íslands gegn Króatíu í leik um bronsverðlaun á Evrópumóti hafi umfjöllun eða upphitun RÚV verið lokið. ,,Það voru 20 mínútur í leik og þá er hent í skjáauglýsingar. 20 mínútum fyrir leik þá er umfjöllunin eða upphitunin fyrir leik í EM stofunni lokið.” Stymmi klippari hafði einnig tekið eftir því hversu stutt hálfleiks umræða EM stofunnar hafði verið í leikjum Íslands og ákvað að taka tímann á umfjölluninni í hálfleik á leik Íslands og Króatíu. ,,Þau náðu 4 mínútum og 12 sekúndum í umfjöllun í hálfleik, í 15 mínútna hálfleik. Var einhver frá RÚV eða var þetta false frétt um RÚV að HSÍ fengi einhverja köku af auglýsingasölum RÚV í kringum EM?” ,,Það er sama með það og með miðasöluna í Köln á úrslitin á HM á næsta ári, hvort það sé búið að græja það eða hvort HSÍ hafi sofið á verðinum þar þá væri líka rosalega gott að fá þessar tölur frá RÚV, ekki bara að segja það. Það komu allavegana engar tölur frá RÚV, ég held að þetta sé bull shit” sagði Mike áður en Stymmi klippari greip inní en Mike var gestur í þættinum ásamt Theodóri Inga Pálmasyni. ,,Ég hitti mann í dag sem hefur aðgang að þessu og það er ekki króna í bókhaldinu hjá HSÍ um þetta. Þetta er algjör hestaskítur,” ,,Ég hef allavegana ekki séð þetta. Þetta er allavegana ekki stórar fjárhæðir ef þær eru þarna,” bætti Theodór Ingi Pálmason við sem hefur verið skoðunarmaður ársreiknings HSÍ undanfarin ár. ,,Ég skil alveg að það séu einhverjar auglýsingar í hálfleik en það fer meira en 2/3 af hálfleiknum í auglýsingar,” sagði Stymmi klippari áður en Theodór greip inní. ,,Ef þú ætlar vera með einhverja hálfleiksumfjöllun og þú ert með þrjá sérfræðinga og einn stjórnenda, farðu bara beint í viðtöl og slepptu allri umfjöllun.” Umræðuna um RÚV og EM stofuna er hægt að hlusta á í uppgjörsþætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.