Stressuð en vissi að þær myndu skora
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Alfa Brá Hagalín Oddsdóttir leikmaður Fram var himinlifandi eftir eins marks sigur Fram á ÍR í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins í kvöld en um var að ræða fyrstu viðureignina í umferðinni.

Fram var 17-10 yfir í hálfleik en liðið náði mest átta marka forystu í fyrri hálfleik í stöðunni 15-7. ÍR voru hinsvegar töluvert betri aðilinn í seinni hálfleik og jöfnuðu metin þegar innan við mínúta var eftir af leiknum. Það dugði hinsvegar ekki til og skoraði Harpa María Friðgeirsdóttir sigurmark Fram í leiknum.

,,Það var frábært að enda þetta svona. Við missum þetta rosalega mikið niður í seinni hálfleik og við spiluðum ekki jafn vel í seinni hálfleik eins og í þeim fyrri en við unnum með einu og erum komnar áfram og það er alveg geggjað," sagði Alfa Brá í viðtali við Gunnar Birgisson í beinni á RÚV beint eftir leik.

Hvernig leið henni undir lokin þegar ÍR jafnaði metin og hálf mínúta eftir af leiknum?

,,Ég var stressuð en ég vissi að við myndum skora og Harpa skorar alltaf.”

Var Fram með eitthvað plan í lokasókninni?

,,Nei í rauninni ekki, bara vera yfirvegaðar og ekki tapa boltanum eins og við vorum búnar að vera gera,” sagði Alfa Brá.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top