Hálf orðlaus eftir eins marks tap í bikarnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Katrín Tinna Jensdóttir leikmaður ÍR var að vonum svekkt eftir eins marks tap gegn Fram í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins sem fram fór í kvöld í Úlfarsárdalnum. Eftir að hafa verið 17-10 undir í hálfleik komu ÍR til baka og jöfnuðu metin þegar innan við mínúta var eftir af leiknum.

Sú endurkoma dugði hinsvegar skammt því Harpa María Friðgeirsdóttir tryggði Fram sigurinn með marki úr síðustu sókn Fram í leiknum.

,,Ég er eiginlega hálf orðlaus, ég veit ekki hvað ég á að segja," sagði Katrín Tinna í viðtali við Gunnar Birgisson á RÚV eftir leik.

Það var allt annað ÍR lið sem spilaði seinni hálfleikinn miðað við þann fyrri. Hvað breyttist?

,,Við þurftum að breyta nánast öllu. Við vorum búnar að vera duglegar að keyra á þær en þetta datt allt með þeim og ekkert með okkur og við agalausar. Það var í raun bara að duga eða drepast í seinni og við tókum handbremsuna af og keyrðum á þetta."

ÍR fór með fjölmörg dauðafæri í leiknum og sérstaklega í byrjun seinni hálfleiks þegar Ingunn María var að loka ÍR markinu.

,,Mér fannst við oft á tíðum vera spila okkur vel í gegn og koma okkur í góð færi en stundum er þetta svona. Það er það eina sem ég get eiginlega sagt,”  sagði Katrín Tinna að lokum í viðtali við RÚV.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top