Óðinn Þór Ríkharðsson (JOHAN NILSSON / TT NYHETSBYRÅN / TT News Agency via AFP)
Handkastið gerði upp Evrópumótið í uppgjörsþætti sínum í gærkvöldi þar sem Theodór Ingi Pálmason og Mikael Nikulásson voru gestir Handkastsins. Ísland lauk leik með tapi gegn Króatíu í leik um bronsið og þurfti því að sætta sig við fjórða sætið á mótinu. Umræðuefnin voru mörg í þættinum en meðal annars var rætt um EM stofuna á RÚV en menn höfðu miklar skoðanir á því hvernig sú umfjöllun var á mótinu. Mikael Nikulásson hafði til að mynda ekki mikinn húmor fyrir gæðalausum spurningum sérfræðinga EM stofunnar í viðtölum eftir leik og fannst það ná ákveðnum lágpunkti eftir Króata leikinn þegar Snorri Steinn Guðjónsson var mættur í viðtal eftir tap um verðlaunapening á stórmóti. ,,RÚV þarf að fara gera þetta betur. Það eru misjöfn viðtölin sem maður hefur séð í þessum íþróttum síðustu 40-50 árin en þetta viðtal við Snorra eftir tapið gegn Króatíu og þessar spurningar og síðan kemur Óli og blaðrar eitthvað og endar á að segjast ekki vera með neina spurningu og greyið Snorri stendur og nýbúinn að missa af bronsinu, tveimur mínútum eftir leik og það eru einhverjir gaurar, sama hvort það sé ég, Teddi, Arnar Daði eða Logi Geirsson. Það er ekki okkar hlutverk að vera spyrja þjálfarann að einhverju nokkrum mínútum eftir leik, einhverjar þvælu spurningar.” ,,Já til hamingju með fjórða sætið, sagði Logi Geirsson. Og Kári Kristján var eitthvað að bulla með einhverja frasa. Síðan kemur Óli Stef. Með einhverja ræðu og segist síðan ekki vera með neina spurningu, greyið Snorri þurfti að standa undir þessu. Þetta er galið, hvar er þáttastjórnandinn, afhverju er hún ekki að spyrja einhverjar 3-4 spurningar og málið er dautt,” sagði Mike áður en Theodór Ingi Pálmason tók undir orð hans. ,,Eini maðurinn sem getur komist upp með svona bíó er Ólafur Stefánsson,” ,,En eina sjónvarpsstöðin í heiminum sem kemst upp með svona er RÚV. Þú sérð þetta ekkert annarsstaðar. Það væri allt annað ef einhver væri kominn í settið til þeirra og fullt af spurningum ef þetta væri lengra viðtal en beint eftir leik, Snorri er úti og að þurfa að hlusta á svona þvælu. Ég vorkenndi Snorra Steini þarna,” sagði Mike og benti á að fólk á samfélagsmiðlum væri síðan að benda á hversu leiðinlegur Snorri Steinn væri í viðtölum. Hann sagði að það væri erfitt að meta það eftir svona viðtöl eins og RÚV bauð uppá. Hægt er að hlusta á uppgjörsþátt Handkastsins eftir EM á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.