Danmörk er ekki að fara vinna HM á næsta ári
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Handkastið gerði upp EM í uppgjörsþætti sínum í gærkvöldi þar sem Sérfræðingurinn og Klipparinn fengu þá Theodór Inga Pálmason og Mikael Nikulásson til sín í Rapyd stúdíó-ið.

Farið var yfir sögulegan sigur Danmerkur á mótinu eftir sigur á Þjóðverjum í úrslitaleiknum. Danir eru þar með ríkjandi heims, Evrópu- og Ólympíumeistarar.

,,Þeir töpuðu leik á þessu Evrópumóti eins og þeir eru vanir að gera en töpuðu að þessu sinni rétta leiknum ekki á síðari stigum keppninnar. Þetta er fáránlega rútínerað lið og svo áreynslulaust fyrir þá. Hvernig þeir ná að hvíla sínu bestu sóknarmenn í Simon Pytlick og Mathias Gidsel varnarlega án þess að það bitni á liðinu, með Kirkelökki og Magnus Landin varnarlega til skiptis. Hvernig Saugstrup er besti varnarmaður í heimi, hann er líka ógeðslega góður línumaður en maður tekur ekkert endilega eftir því, því hann er ekkert endilega að reyna fá boltann og skora mörk. Hann stendur bara eins og körfuboltamaður og er að blokka, eina sem hann gerir er að búa til pláss fyrir Gidsel og Pytlick. Það er ekki af því hann er svo ógeðslega stór, þetta eru bara tímasetningar," sagði Theodór Ingi Pálmason og bætti við:

,,Síðan fá þeir Thomas Arnoldsen inn í lokin og með fullri virðingu fyrir Rasmus Lauge þá er Arnoldsen miklu betri leikmaður í dag.”

Mikael Nikulásson var ekki hrifinn af því hvernig var staðið að þessari úrslitahelgi Evrópumótsins varðandi miðasöluna og annað slíkt.

,,Ég kalla þetta danska meistaramótið í handbolta þetta árið og nú er það búið. Þetta er hreinn og beinn skandall. Eftir að þeir ná að grísa út sigur gegn Frökkum þá var leiðin í undanúrslitin klár fyrir þá og síðan er þessi undanúrslit fíaskó og sjá Þýskaland þar sem hvergi er jafn mikill áhugi á handbolta og þar, þeir fá varla sæti í stúkunni í úrslitaleiknum. Þetta er galið, við höfum verið að tala um Íslendingana en Þjóðverjarnir hefðu alltaf getað komið með einhverja 7.500 áhorfendur á móti Dönunum þó að við hefðum bara mætt með 3.000. Þetta var sett upp fyrir Danina og mér fannst dómgæslan í báðum leikjum Danmerkur um helgina, ég er ekkert endilega að tala um að þetta hafi verið mútur dómgæsla en það voru risastór atvik í báðum leikjunum og heilt yfir hvernig línan var, þá var hún á bandi Dana. Það átti að láta þá vinna þetta. Ég er hinsvegar sammála því að þeir eru með besta liðið en þeir þurfa ekki alla þessa hjálp."

,,Ég skal lofa ykkur því og munið þessi orð, Danmörk er ekki að fara vinna HM í Þýskalandi á næsta ári," sagði Mikael Nikulásson sem oftast er kallaður Mike.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top