Stymmi spáir í spilin: 16. umferð Olís deild karla
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stymmi spáir í spilin (

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 16.umferð fari í Olís deild karla.

HK – FH (Miðvikudagur 18:00) / Sigurvegari: FH

Það fá margir veðmálasérfræðingar áfallastreituröskun þegar þeir sjá þessi tvö lið mætast. FH hefur gengið illa með HK í deildarkeppni undanfarin ár. HK eru í bullandi baráttu um sæti í úrslitakeppninni meðan FH er að leitast eftir að tryggja stöðu síðan fyrir heimaleikaréttinn í vor. Ég held að undir og stórmerki gerist í þessum leik og FH vinni.

ÍBV – Selfoss  (Miðvikudagur 18:00) / Sigurvegari: ÍBV

Hákon Daði Styrmisson er mættur heim en það er Einar Sverrisson líka hjá Selfyssingum. Alvöru suðurlandsslagur sem við fáum til að keyra Olís deildina aftur af stað eftir landsleikjahlé. ÍBV verða sterkari á heimavelli í kvöld og vinna þetta.

ÍR– KA (Miðvikudagur 18:30) / Sigurvegari: KA

KA mæta suður með nýjan markmann og vinstri hornamann. ÍR sitja á botni deildinnar en það eru einungis 2 stig upp í öruggt sæti. En með þessum styrkingum hjá KA tel ég að róðurinn verði þungur fyrir ÍR á heimavelli í kvöld og KA fari með stigin tvö heim.

Stjarnan – Þór (Fimmtudagur 18:30) / Sigurvegari: Þór

Stjarnan lét aðstoðarþjálfarann fara fyrir jól til að hrista upp í þessu. Þeir hafa hins vegar verið að missa leikmenn í meiðsli í janúar og sótt leikmenn í Grill 66 deildina til að styrkja hópinn. Liðin gerðu jafntefli í fyrri umferðinni en miðað við meiðslin í herbúðum Stjörnunnar tel ég góðan séns á Þór sigri hér og Coolbet bjóða stuðul upp á 2.45 á Þór.

Valur – Haukar  (Fimmtudagur 19:30) / Sigurvegari: Valur

Stórleikur á Hlíðarenda þar sem liðin í fyrsta og þriðja sæti mætast. Björgvin Páll er nýkominn heim og fer beint í leik í Olísdeildinni meðan Haukar náðu sér í nýjan markmann í glugganum þegar Grétar Áki kom aftur heim. Þetta verður gífurlega spennandi leikur sem ég held að Valsmenn hafi á endanum á heimavellinum.

Fram – Afturelding (Laugardagur 20.15) / Sigurvegari: Fram

Baráttan um bílastæði Bauhaus. Leikir þessara liða hafa verið naglbítar undanfarin ár og það verður engin breyting á því á morgun. Afturelding var í frábærum málum fyrir jól og léku við hvern sinn fingur meðan Fram var í miklu álagi og meiðslum. Ég held að þeir séu klárir í bátana núna og vinnir granna sína úr Mosfellsbæ á fimmtudaginn. Coolbet gefur Fram sigur á stuðlinum 2.20 en þeir sem vilja hafa jafnteflið með einnig geta fengið stuðulinn 1.77

15.umferð (5.réttir)
14.umferð (3 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (4 réttir)
11.umferð (4 réttir)
10.umferð (5 réttir)
9.umferð (4 réttir)
8.umferð (5 réttir)
7.umferð (3 réttir)
6.umferð (2 réttir)
5.umferð (3.réttir)
4.umferð (4.réttir)
3.umferð (5 réttir)
2.umferð (4 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top