Gudjon Agusts (
Selfyssingurinn og hægri hornamaðurinn Guðjón Ágústsson sem fæddur er 1996 og spilaði með Selfossi og Víking í mörg ár fann nýja ástríðu eftir að hann lagði handboltaskóna á hilluna árið 2023. Guðjón var ótrúlega lunkinn hornamaður. Hávaxinn og með fína skottækni. Sportið sem hann fann sig í var heldur óvenjulegt fyrir fyrrum handboltamenn. Það hefur væntanlega verið afar fátítt að fyrrum handboltamenn fari af fullum þunga í sportið sem hann fékk bakteríu fyrir. Við heyrðum aðeins í Guðjóni og fengum hann til að segja okkur frá nýja áhugamálinu og nýju ástríðunni í hans lífi. Gefum honum orðið.
"Árið 2023 fékk ég inngöngu í mastersnám í sálfræði í Amsterdam og ákvað þá að leggja handboltaskóna á hilluna. Ég fann líka að ég var ekki með sama metnað og sömu ánægju fyrir handboltanum og áður og gekk því sáttur frá borði. En ég er ævinlega þakklátur fyrir allt sem handboltinn gaf mér og minn ca. 10 ára feril í meistaraflokki með Selfoss og Víking"
"Það að flytja til Amsterdam horfði ég á sem gullið tækifæri að prófa einhverja nýja íþrótt á nýjum stað. Skólinn bauð upp á alla flóruna af íþróttum en ég endaði á að velja samkvæmisdans og hestamennsku. Ég er alinn upp í sveit og hef aðeins verið viðloðinn hesta í gegnum tíðina en þarna lærði ég að sitja þetta erlenda kyn og þeir hestar eru þó nokkuð hærri í loftinu en þeir íslensku"
Dansað til æviloka
"Hvað valið á dansinum varðar þá var það nokkuð random. Ég hafði eitthvað hugsað áður að það væri cool að getað dansað og eitthvað sem þú gætir gert til æviloka, ólíkt handboltanum. Þannig ég lét slag standa og kollféll eiginlega strax fyrir þessu. Það tók sinn tíma að læra inn á taktinn í tónlistinni en ég held ég sé búinn að ná allt í lagi tökum á því í dag. Annars er þetta mjög gefandi íþrótt á mörgum sviðum. Er fínasta hreyfing/cardio og æfing í samhæfni, og svo geturu notið góðrar tónlistar og félagsskaps á meðan. Lærir að hreyfa þig í takt við tónlistina og í samhljómi við dansfélaga þinn, þar sem maður er annað hvort í hlutverki leiðanda (leader) eða fylgjanda (follower).
Félagsskapur og gist á dýnu í skólastofu
"Það sem spilar stóran þátt í að haldast í þessu er félagsskapurinn í kringum þetta. Úti var maður partur af nemendafélagi og allskyns félagslegir viðburðir skipulagðir í kringum starfið.
Svo skráði ég mig líka í keppni þar sem nemendafélög úr skólum héðan og þaðan í Evrópu komu saman yfir eina helgi til að etja kappi, svolítið svipað dæmi og yngriflokkamótin í handboltanum hérna í denn. Keppt yfir daginn, social dans um kvöldið og svo sofið á dýnu á gólfinu í íþróttahúsi. Ég hafði mjög gaman af því og hefur þar eflaust keppnisskapið sem maður þróaði með sér í handboltanum haft einhver áhrif"
Dansskóli Köru, vinatengsl og Hector með góða speki
"Þegar leið á dvölina í Amsterdam bætti ég social latin dönsunum Salsa og Bachata við samkvæmisdansana. Þeir eru ekki síður skemmtilegri og mín tilfinning er að þeir séu vinsælli á meðal fullorðinna, allavega þegar kemur að svona social danskvöldum
Eftir að ég flutti heim hafði ég strax samband við Köru í dansskóla Köru sem kennir mér samkvæmisdansa í dag. Ég byrjaði svo í Salsa hjá Eddu í SalsaIceland en núna er ég hjá Hectori í Hector Latin dance RVK. Þar æfi ég Cuban salsa bæði með mínum hóp og fæ svo að hjálpa til í hópum sem eru styttra komnir. Þannig maður fær að æfa ca 4x í viku samanlagt þegar allt er í gangi, ásamt því að fara reglulega á salsa danskvöld. Þetta er einstaklega gaman og erfitt að labba út af danskvöldi ekki með bros á vör.
Það hefur líka myndast mjög góð stemmning í kringum þetta og ég hef eignast marga vini sem ég er mjög þakklátur fyrir. Ég mæli hiklaust með þessu en eins og Hector sagði „ef þú kannt að labba þá geturu lært að dansa salsa“.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.