Sara Rún framlengir í Úlfarsárdalnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sara Rún Gísladóttir hefur framlengt samningi sínum við uppeldisfélag sitt Fram. Hefur Sara Rún skrifað undir samning til gildir til ársins 2029.

,,Sara Rún hefur farið mikinn á tímabilinu með Fram 2 í Grill-deildinni og er ein af markahæstu leikmönnum deildarinnar. Það verður spennandi að sjá þróun hennar með okkur á næstu misserum. Sara Rún, systur hennar tvær, Brynja og Íris, sem og foreldrar hennar, Gísli og Lilja eru mjög áberandi hér í starfinu í félaginu og erum við hæstánægð með að halda okkar fólki hjá okkur og sjá það vaxa og dafna," segir í tilkynningunni frá Fram.

Sara Rún hefur skorað sjö mörk í 14 leikjum með Fram í Olís-deild kvenna á tímabilinu en hún hefur hinsvegar skorað 123 mörk í Grill66-deildinni í vetur með Fram 2 þar sem hún er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar á eftir Katrínu Helgu Davíðsdóttur leikmanni Aftureldingar og Laufeyju Helgu Óskarsdóttur leikmanni Val 2.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top