GOG fær til sín sænskan landsliðsmann
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Lucas Pellas (STEPHANE DE SAKUTIN / AFP)

Danska úrvalsdeildarfélagið GOG hefur tryggt sér krafta sænska landsliðsmannsins Lucas Pellas, sem gengur til liðs við félagið í sumar frá franska stórliðinu Montpellier. Samningurinn Pellas er til tveggja ára og er liður í áframhaldandi uppbyggingu GOG fyrir komandi tímabil.

Pellas, sem er 29 ára vinstri hornamaður, hefur undanfarin sex ár leikið með Montpellier í einni sterkustu deild Evrópu, Lidl Starligue. Þar hefur hann verið fastamaður og burðarás í liði sem reglulega keppir í Evrópukeppnum og berst um titla í Frakklandi.

Lucas Pellas meiddist illa á síðustu leiktíð sem varð til þess að Dagur Gautason sem var fenginn til Montpellier seinni hluta síðasta tímabil til að fylla hans skarð hjá Montpellier.

Áður en hann hélt til Frakklands lék Pellas með Lugi HF í heimalandinu. Nú er ljóst að hann leikur í dönsku úrvalsdeildinni næstu tvö tímabil.

Pellas hefur um árabil verið lykilmaður í sænska landsliðinu og á að baki fjölda stórmóta. Hann varð Evrópumeistari með Svíum árið 2022 og hefur einnig unnið til silfurverðlauna á heimsmeistaramóti.

Með komu Pellas fyllir GOG skarð Frederik Bjerre sem var kynntur sem leikmaður Wisla Plock í Póllandi frá og með næsta sumri en hann gekk í raðir GOG fyrir þetta tímabil frá Tvis Holstebro.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top