Ágúst Jóhannsson (Sævar Jónasson)
Eftir slæmt tap gegn Haukum í fyrsta leik eftir áramót hafa Valsmenn unnið Aftureldingu og KA nokkuð sannfærandi og hafa tyllt sér á topp Olís-deildarinnar á nýjan leik þegar einungis fjórar umferðir eru eftir. Rætt var um toppbaráttuna í nýjasta þætti Handkastsins og farið yfir síðustu fjóra leiki Vals og Hauka sem eru í efstu tveimur sætum deildarinnar fyrir síðustu fjórar umferðirnar. ,,Ég verð að viðurkenna það miðað við hvernig Valur spilaði gegn Haukum þá sá ég ekki fyrir mér tvo sannfærandi sigra koma í kjölfarið gegn Aftureldingu og KA," opnaði Arnar Daði Arnarsson, Sérfræðingurinn umræðuna um Val en Valur vann KA 36-31 á heimavelli í lokaleik 18.umferðarinnar. ,,Mér líður eins og ég hafi verið gaslýstur af þjálfara Vals sem lét mig heyra það þegar ég spáði Valssigri gegn Haukum í 16.umferðinni. Það kom mér á óvart hvað þeir unnu þessa báða leiki sannfærandi. Ég var búinn að millifæra deildarmeistaratitilinn í Hafnarfjörðinn." Síðustu leikir Vals á tímabilinu: ,,Einu stigin sem ég sé Val tapa í sínum leikjum er gegn ÍBV í lokaumferðinni," sagði Stymmi eftir að hafa skoðað hvaða leiki Valur á eftir og bætti við: ,,Ef Haukar vinna FH á fimmtudaginn sem ég held að þeir geri þá eru þeir í möguleika að verða deildarmeistarar en þá þurfa þeir að treysta á ÍBV gegn Val í lokaumferðinni. Það hefur alltaf verið hlýtt á milli Hauka og ÍBV.” Síðustu leikir Hauka á tímabilinu: ,,Ef það er allt undir hjá Val til að verða deildarmeistarar í Eyjum í lokaumferðinni þá sé ég það ekki klikka,” sagði Sérfræðingurinn og benti á að Valur vann ÍBV með átta mörkum í fyrri umferðinni. ,,Valur verður deildarmeistari,” bætti Kristinn Björgúlfsson við í umræðuna þegar Sérfræðingurinn fór að herja á svör um það hvort Valur yrði deildarmeistari eða Haukar.
ÍR (Úti)
Fram (Heima)
HK (Heima)
ÍBV (Úti)
FH (Heima)
Þór (Úti)
Selfoss (Heima)
HK (Úti)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.