Tveir lærisveinar Arnórs í liði umferðarinnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Noah Beyer (Jürgen Fromme / AFP)

21.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk í gær þegar Eisenach vann góðan sigur á lærisveinum Arnórs Þórs í Bergischer. Magdeburg er á toppi deildarinnar með 38 stig en Füchse Berlin er með 34 í 2.sætinu.

22.umferðin í þýsku úrvalsdeildinni hefst á fimmtudaginn er Guðjón Valur og hans lærisveinar taka á móti Eisenach í Schwalbe Arena.

Daikin Handbdall gaf út lið umferðarinnar sem lítur svona út.

Konstantin Möstl(Lemgo Lippe)

Austurríski markvörðurinn Konstantin Möstl átti glæsilegan leik er Erlangan sótti lið hans Lemgo heim. Möstl varði 16 bolta sem samsvaraði 47,1% hlutfallsmarkvörslu.

Noah Beyer(Bergischer)

Noah Beyer vinstra hornarmaður Bergischer og lærisveinn Arnórs Þórs átti góðan leik er lið hans tapaði gegn Eisenach. Noah skoraði 7 mörk úr 8 skotum í leiknum.

Lasse Andersson(Füchse Berlin)

Lasse Andersson átti góðan leik er Füchse Berlin vann dýrmætan sigur á Stuttgart. Andersson skoraði 8 mörk auk þess að hafa gefið 8 stoðsendingar.

Tomas Babak(Bergischer)

Tomas Babak átti fínan leik er lið hans Bergischer tapaði gegn Eisenach á útivelli. Tomas skoraði 3 mörk úr 3 skotum auk þess að hafa gefið 1 stoðsendingu.

Edwin Aspenbäck(Rhein-Neckar Löwen)

Edwin Aspenbäck liðsfélagi Hauks Þrastar átti góðan leik þegar Löwen vann Minden á útivelli. Edwin skoraði 5 mörk ásamt því að hafa gefið 6 stoðsendingar.

Lukas Zerbe(THW Kiel)

Lukas Zerbe hægra hornarmaður Kiel átti góðan leik þegar lið hans vann Magdeburg í Wunderino Arena. Zerbe skoraði 9 mörk í leiknum.

Johannes Golla(Flensburg)

Johannes Golla leikmaður Flensburg átti góðan leik er Flensburg sigraði Hamburg á útivelli. Golla skoraðin 6 mörk í leiknum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top