Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson (Þorgils Garðar Gunnþórsson)
Í dag mættust ÍH og Fjölnir í Grill 66 deild karla í Kaplakrika. Hjá ÍH var hinn bráðefnilegi Brynjar Narfi Arndal markahæstur með 9 mörk. Kristján Rafn Oddsson varði 7 skot. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.
Leikurinn var mjög jafn til að byrja með og eftir 15 mínútna leik var staðan 8-9 fyrir gestina úr Grafarvogi. Jafnræðið hélt áfram fram til 22 mínútu leiksins en þá náði Fjölnir mjög góðum kafla og náði að slíta sig aðeins frá heimamönnum í ÍH. Í hálfleik var staðan 14-18.
Í seinni hálfleik var aldrei spurning hvernig leikurinn myndi fara. Fjölnismenn voru mun öflugari og voru oftast 4-6 mörkum yfir í seinni hálfleik. ÍH-ingar voru aldrei líklegir til að ógna þeim að neinu ráði. Fór það svo að lokatölur urðu 26-34 fyrir Fjölnismönnum.
Hjá Fjölni var hinn geðugi og gamalkunni rammavörður Viktor Alex Ragnarsson með skínandi leik en hann varði 12 bolta. Óli Fannar Pedersen var með 8 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.