Lukas Mertens (Michael Hundt / AFP)
Hornamennirnir í liði Magdeburg, Matthias Musche og Lukas Mertens hafa báðir framlengt samningi sínum við Evrópumeistarana. Félagið tilkynnti þetta um helgina. Lukas Mertens var í þýska landsliðinu sem vann til silfurverðlauna á Evrópumótinu með Þýskalandi núna í upphafi árs en hann gekk í raðir Magdeburg sumarið 2017 eftir að hafa leikið með Wilhelmshavener frá 2013-2017. Lukas Mertens er fæddur árið 1996. Matthias Musche er fjórum árum eldri, fæddur árið 1992 og er uppalinn hjá Magdeburg. Hann hefur leikið með liðinu frá árinu 2011 að undanskildu einu ári er hann lék á láni með SV Post Schwerin. Musche varð fyrir því óláni að slíta hásin í leik með Magdeburg í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð gegn One Veszprém. Musche gerir samning við Magdeburg til ársins 2028 á meðan samningur Lukas Mertens við þýska stórliðið gildir til ársins 2029.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.