Palicka er hættur að spila með landsliðinu (Beate Oma Dahle / NTB / AFP)
Michael Apelgren landsliðsþjálfari Svía hefur valið 18 manna hóp sem kemur hingað til lands til þess að spila tvo æfingaleiki við Ísland dagana 19. og 23. mars. Leikurinn við Ísland stærstu vonbrigðin á EM Í samtali við Aftonbladet kvaðst Apelgren liðið eiga harma að hefna eftir vonbrigðin á EM. Hann segir leikinn við Ísland vera leikurinn sem olli þeim mestum vonbrigðum en Ísland vann 35-27 þar sem Svíar virtust engin svör hafa við leik íslenska liðsins. Apelgren sagði leikinn við Ísland undirstrika vonbrigði þeirra með varnarleik liðsins á EM og að það verði gott að fá tækifæri til þess að vinna í því gegn Íslandi. Palicka hættur með landsliðinu Stærsta breytingin á hópnum núna er sú að Andreas Palicka sem tilkynnti nýlega að hann væri nú hættur að leika fyrir landsliðið verður ekki með og í hans stað kemur Marko Roganovic, eldri bróðir Nikola Roganovic, sem er einn efnilegasti leikmaður Evrópu um þessar mundir og skrifaði nýlega undir hjá Guðjóni Val Sigurðssyni hjá Gummersbach. Marko spilar hjá Berringbro Silkeborg í Danmörku. Hópurinn í heild sinni sem kemur til Íslands:
Mikael Appelgren, ONE Veszprem
Fabian Norsten, Aalborg Handbold
Marko Roganovic, Bjerringbro-Silkeborg
Felix Montebovi, HK Malmö
Max Darj, Füchse Berlin
Felix Möller, Aalborg Handbold
Oscar Bergendahl, SC Magdeburg
Daniel Pettersson, SC Magdeburg
Sebastian Karlsson, Paris Saint-Germain
Jonathan Carlsbogård, FC Barcelona
Nikola Roganovic, HK Malmö
Eric Johansson, THW Kiel
Felix Claar, SC Magdeburg
Jim Gottfridsson, Pick Szeged
Axel Mansson, IFK Kristianstad
Lukas Sandell, Rhein-Neckar Löwen
Albin Lagergren, SC Magdeburg

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.