Bessi Teitsson (Eyjólfur Garðarsson)
Unglingalandsliðsmaðurinn, Bessi Teitsson er samkvæmt heimildum Handkastsins á leið í Val frá uppeldisfélagi sínu Gróttu. Bessi sem er fæddur árið 2006 hefur verið lykilmaður í liði Gróttu á þessu tímabili í Grill66-deildinni en Grótta er í 2.sæti deildarinnar í harðri baráttu við Víking um efsta sætið en Víkingur stendur betur að vígi. Bessi hefur skorað 64 mörk í 14 leikjum með Gróttu á tímabilinu sem gerir 4,6 mörk að meðaltali í leik en hann er annar leikmaður Gróttu sem er sagður vera á leið annað næsta sumar en á dögunum var sagt frá því að leikstjórnandinn, Antoine Óskar Pantano væri á leið í FH. Bessi þekkir vel til þjálfarateymis Vals, Ágúst Jóhannsson er unglingalandsliðsþjálfari Bessa í U20 ára landsliðinu og þá er Róbert Gunnarsson aðstoðarþjálfari Vals en hann þjálfaði Gróttu í þrjú ár áður en hann tók við sig aðstoðarþjálfari Vals í sumar. Bessi er þriðji leikmaðurinn sem er orðaður við Val síðustu daga. Áður hefur Ágúst Guðmundsson leikmaður HK og Jón Ásgeir Eyjólfsson leikmaður Stjörnunnar verið orðaðir við Val sem er á toppi Olís-deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir. Valur er með þriggja stiga forskot á FH.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.