Langmarkahæsti leikmaður ÍR í Olís-deild karla síðustu tvö tímabil, Baldur Fritz Bjarnason er ekki í leikmannahópi ÍR í úrslitaleik Powerade-bikarsins gegn Haukum í kvöld. Baldur Fritz meiddist snemma leiks í sigri liðsins gegn KA í undanúrslitum Powerade-bikarsins og lék ekkert meira með í leiknum. Nú er ljóst að hann tekur ekkert þátt í leiknum gegn Haukum í kvöld. Um er að ræða gríðarlegt áfall fyrir botnlið ÍR í Olís-deildinni fyrir leikinn. ÍR greindi frá því á samfélagsmiðlum sínum í gær að Björgvin Þór Hólmgeirsson og Arnar Freyr Guðmundsson væru búnir að gera leikmannasamning við ÍR og yrðu löglegir í leiknum í kvöld. Hvorugur þeirra er þó í leikmannahópi ÍR í kvöld. Yngri bróðir Baldurs, Bjartur Fritz Bjarnason sem er fæddur árið 2010 kemur inn í leikmannahóp ÍR fyrir úrslitaleikinn sem hefst klukkan 18:30 í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.