Ótrúleg endurkoma tryggði Val bikarmeistaratitilinn
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Kvennalið Vals er bikarmeistari eftir sigur á Haukum í kaflaskiptum leik á Ásvöllum í dag. Bæði lið fóru í gegnum mikla markaþurrð í leiknum og var leikurinn gríðarlega kaflaskiptur. Valur reyndist hinsvegar töluvert sterkari aðilinn á lokakaflanum og vann síðustu 15 mínútur leiksins 9-1. Já ég endurtek, 9-1!

Það var ekki margt í leik Vals sem benti til þess að liðið kæmi til baka í stöðunni 18-14 fyrir Haukum á 45 mínútu leiksins en á einhvern ótrúlegan hátt kom Valsliðið til baka og vann fjögurra marka sigur 23-19.

Haukar voru einu marki yfir í hálfleik 11-10 en ekkert mark var skorað á síðustu 10 mínútum fyrri hálfleiks. Haukar hófu seinni hálfleikinn betur og komust í 13-10 og Haukarnir höfðu gott forskot allt þar til í stöðunni 18-14 en þá varð hrun.

Ekkert gekk hjá liðinu sóknarlega en Valur geta þakkað fyrir innkomu Theu Imani Sturludóttir sem kom inn í vörn Vals og í stöðunni 18-14 gat Anton Rúnarsson ekki gert neitt annað en sett hana í sóknarleik liðsins sem hafði góð áhrif á allt flæðið. Valsstelpur komu sér hægt og bítandi betur inn í leikinn og jöfnuðu metin í 18-18 þegar sjö mínútur voru eftir.

Hrun Hauka hélt áfram og það virtist ekkert geta stöðvað Val og voru þær komnar tveimur mörkum yfir 20-18 þegar tvær og hálf mínúta var eftir af leiknum. Haukar komust ekki til baka úr því og Valsstelpur tryggðu sér bikarmeistaratitilinn eftir árs bið en Haukar voru ríkjandi bikarmeistarar eftir sigur á Fram á síðustu leiktíð.

Hjá Val voru þær Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Arna Karitas Eiríksdóttir og Elísa Elíasdóttir markahæstar með fjögur mörk hver. Hafdís Renötudóttir var valin besti leikmaður úrslitahelgarinnar en hún varði 16 skot í leiknum, jafn mörg og Sara Sif í marki Hauka.

Hjá Haukum var Jóhanna Margrét Sigurðardóttir markahæst með fimm mörk og Sonja Lind Sigsteinsdóttir kom næst með fjögur mörk.

Til hamingju Valur!

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top