Stefán Arnarson þjálfari Hauka var að vonum svekktur eftir fjögurra marka tap í úrslitaleik Powerade-bikarsins á Ásvöllum í dag. Valsliðið reyndist sterkari aðilinn síðustu 15 mínútur leiksins og sneru taflinu sér í vil eftir að hafa verið 14-18 undir. Valur vann leikinn að lokum 23-19. ,,Okkur leið vel fyrir utan kannski síðustu 15 mínúturnar sóknarlega. Við erum að spila gegn sterku liði og þær voru bara skynsamri en við og kláruðu þetta," sagði Stefán Arnarson í viðtali við Handkastið eftir leik. ,,Hugsanlega hefði ég getað gert eitthvað betur en við fórum svolítið mikið í einstaklingsframtak og ég hefði kannski getað stjórnað þessu betur," sagði Stefán sem segir að stelpurnar sínar séu skiljanlega vonsviknar eftir leikinn. ,,Það er ömurlegt að tapa bikarúrslitaleik en þetta á að efla okkur til stærri hluta." En hvað var hann ánægðastur með? ,,Mér fannst varnarleikurinn frábær og markvarslan var góð. Sóknarleikurinn í 40 mínútur var flottur og við vorum að skora og opna þær. Við vorum að klikka á einstökum færum en heilt yfir góður leikur og en við vorum félagar í 10-12 mínútur og það er ástæðan fyrir því að við erum ekki bikarmeistarar."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.