Sveinn Brynjar Agnarsson var hetja ÍR-inga í undanúrslitum Powerade-bikarsins á fimmtudagskvöldið þegar hann skoraði sigurmark ÍR gegn KA rétt fyrir leikslok. ÍR vann leikinn 32-31 en liðið var yfir í leiknum í nánast 60 mínútur en KA komst einu sinni yfir í leiknum í stöðunni 29-28. Það sem gerir árangur ÍR í Powerade-bikarnum svo merkilegan er það að ÍR hefur unnið fleiri bikarleiki á tímabilinu heldur en deildarleiki í Olís-deildinni. ÍR er á botni Olís-deildarinnar með sjö stig eftir 19 umferðir en liðið hefur unnið tvo leiki og gert þrjú jafntefli. ÍR hefur hinsvegar unnið þrjá leiki í Powerade-bikarnum. ÍR sló út Þór í 16-liða úrslitunum og vann síðan Grill66-deildarlið Fjölnis í 8-liða úrslitunum þangað til liðið sló út KA í undanúrslitunum á fimmtudaginn. Úrslitaleikur Hauka og ÍR hefst klukkan 18:30 í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.