Kielce verður fyrir blóðtöku á slæmum tímapunkti
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Spánverjinn Alex Dujshebaev, leikmaður og fyrirliði Industria Kielce í Póllandi meiddist í Evrópuleik Kielce gegn Fuchse Berlín í vikunni og verður frá keppni næstu vikurnar. Þetta staðfesti föður hans og þjálfari Kielce, Talant Dujshebaev.

Á síðustu mínútum leiksins lagðist Dujshebaev skyndilega niður og hélt utan um lærið á sér. Ljóst var að Alex hafi orðið fyrir vöðva meiðslum aftan í læri og eftir leik staðfesti faðir hans að um vöðvameiðsli væri um að ræða og er gert ráð fyrir því að hann verði frá keppni næstu 6-7 vikurnar.

Meiðsli Dujshebaev eru slæmar fréttir fyrir Kielce. Spánverjinn hefur verið í frábæru formi undanfarnar vikur og liðið í heild sinni hefur verið að ná frábærum árangri og unnið báða leikina í Meistaradeildinni í ár gegn Veszprem og Fuchse Berlín.

Ofan í það koma meiðslin á slæmum tíma þar sem liðið á mikilvæga leiki framundan næstu daga. Strax á morgun er leikur gegn Wisla Plock í pólsku úrvalsdeildinni en liðin eru jöfn að stigum á toppi pólsku úrvalsdeildarinnar.

Í kjölfarið mætir liðið Sporting í næst síðustu umferð Meistaradeildarinnar en Kielce er með 13 stig í 4.sæti riðilsins á meðan Sporting er í 6.sætinu með 12 stig. Einungis tvö stig skilur liðin í 3. og 6. sæti riðilsins og því er mikið í húfi í síðustu tveimur umferðunum í Meistaradeildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top