Sveinn Jóhanns og Óli Brim töpuðu báðir
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Íslendingarnir í Frakklandi og á Ítalíu, Sveinn Jóhannsson og Ólafur Brim Stefánsson þurftu að sætta sig við töp í gærkvöldi með sínum félagsliðum.

Sveinn Jóhannsson skoraði fjögur mörk fyrir Chambéry í frönsku úrvalsdeildinni þegar liðið tapaði fyrir Montpellier 35-31 á heimavelli. Montpellier voru þremur mörkum yfir í hálfleik 16-19 en Montpellier var yfir allan leikinn að undanskildu þegar staðan var jöfn í stöðunni 0-0 og 1-1.

Montpellier er í 3.sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með 29 stig en Chambéry er í 6.sætinu með 20 stig. Bæði lið hafa leikið 18 leiki á tímabilinu en tólf umferðir eru eftir.

Ólafur Brim Stefánsson gekk í raðir Junior Fasano frá Stjörnunni um áramótin en hann hefur farið vel af stað með ítalska liðinu í upphafi árs. Liðið tapaði hinsvegar í gær í 8-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar gegn Albatro Siracusa 31-29 á útivelli. Ólafur Brim lagði sitt á vogarskálirnar og skoraði fimm mörk í leiknum en Junior Fasano var tveimur mörkum yfir í hálfleik 16-14.

Abattoir og Fasano eru í 3. og 4.sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 23 og 22 stig og það var því vitað fyrirfram að um hörkuleik væri um að ræða.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top