Í dag mættust Grótta og Hvíti Riddarinn í Grill 66 deild karla en leikið var í Myntkaup höllinni í Mosfellsbæ. Gestirnir í Gróttu voru alltaf einu skrefi á undan heimamönnum í fyrri hálfleiknum. Eftir korters leik var staðan 6-9. Áfram hélt þetta á þessum nótum. Gróttu menn alltaf 2-3 mörkum yfir og heimamenn náðu ekkert að jafna leikinn. Hálfleikstölur voru 15-17 fyrir Gróttu. Í seinni hálfleik var það sama upp á teningunum. Hvíti Riddarinn andaði aðeins ofan í hálsmálið á gestunum en náði aldrei að jafna leikinn þrátt fyrir að hafa átt nokkra möguleika á því. Mest náði Grótta 4 marka forskoti en síðustu 10 mínútur leiksins var forskotið yfirleitt bara 1-2 mörk. Lokatölur urðu svo 31-32 fyrir Gróttu sem halda enn í vonina að komast beint upp en þá þurfa þeir að klára rest og Víkingur að misstíga sig. Hjá Gróttu var Tómas Bragi Starrason með 10 mörk. Hannes Pétur klukkaði 9 bolta. Hjá Hvíta Riddaranum var Gísli Rúnar Jóhannsson með 12 mörk. Sigurjón Bragi Atlason varði 13 skot. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.