Norðurlöndin: Kolstad með nauman heimasigur
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Kolstad minnkaði mun Elverum niður í fjögur stig í kvöld þegar liðið vann nauman heimasigur á Nærbø, 35-33. Kolstad er áfram í öðru sæti deildarinnar eftir sigurinn með 35 stig en Elverum er með 39 stig. Bæði lið eiga fimm leiki eftir áður en úrslitakeppnin hefst.

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sex mörk úr sex skotum en þar af voru tvö mörk úr vítum á meðan Sigurjón Guðmundsson fékk tækifæri í markinu en hann varði tvö skot af þeim þrettán sem hann fékk á sig eða 15% markvarsla. Benedikt Gunnar Óskarsson var ekki með liðinu að þessu sinni.

Úrslit kvöldsins:

Kolstad 35-33 Nærbø

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top