Segir Guðjón Val vera besta þjálfara í heimi
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Christopher Schindler, framkvæmdastjóri þýska úrvalsdeildarliðsins Gummersbach hrósaði íslenska þjálfaranum Guðjóni Val Sigurðssyni í hástert á dögunum.

Guðjón Valur sem er á sínu sjötta tímabili hjá Gummersbach en um er að ræða fyrsta þjálfarastarf Guðjóns Vals eftir að handboltaferill lauk.

Christopher Schindler hrósaði Guðjóni Val í svörum sínum við spurningum stuðningsmanna Gummersbach á samfélagsmiðlum félagsins þar sem hann var spurður út í Guðjón Val.

,,Hann er búinn að vera hérna í mörg ár og fyrir mér er hann besti þjálfari í heimi. Þegar að þú ert með þjálfara eins og Guðjón Val þá viltu að sjálfsögðu halda honum eins lengi og hægt er. Ein mikilvægasta ákvörðun sem ég hef tekið hjá félaginu var að ráða hann sem þjálfara liðsins á sínum tíma," sagði Schindler en Gummersbach var í þýsku B-deildinni þegar Guðjón Valur tók við. Liðið hefur nú fest sig í sessi sem eitt af toppliðum þýsku úrvalsdeildarinnar.

,,Ég mun gera mitt allra besta svo hann verði sem lengst hjá okkur,“ bætti Schindler við. Gummersbach hefur hægt og bítandi tekið skref í þá átt að nálgast liðin á toppi úrvalsdeildarinnar og hefur liðið verið að styrkja liðið sitt fyrir komandi tímabil.

Hjá Gummersbach leika landsliðsmennirnir Teitur Örn Einarsson og Elliði Snær Viðarssonar en Garðar Ingi Sindrason leikmaður FH gengur í raðir Gummersbach næsta sumar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top