Stiven, Tumi og Óðinn lögðu sitt á vogarskálarnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Það var nóg um að vera hjá íslensku atvinnumönnunum víða um Evrópu í gær en Stiven Tobar Valencia var meðal annars markahæstur í liði Benfica sem vann ABC Braga 35-30 í portúgölsku úrvalsdeildinni.

Stiven gerði sér lítið fyrir og skoraði sjö mörk í leiknum. Benfica eru í 2.sæti deildarinnar með 55 stig tveimur stigum á eftir Sporting sem er á toppi deildarinnar en Sporting á tvo leiki til góða á Benfica. Liðsfélagar Þorsteins Leós Gunnarssonar eru hinsvegar í 3.sætinu með 51 stig en leik þeirra gegn Maritimo var frestað vegna erfiðleika í samgöngum á milli Madeira og Porto.

Úlfar Páll Monsi Þórðarson, jafnaldri Stivens Tobar Valencia og fyrrum samherji í yngri flokkum Vals komst ekki á blað í tapi RK Alkaloid gegn Vardar Skopje í norður-makedónísku úrvalsdeildinni. Vardar sem er á toppi deildarinnar vann eins marks sigur 33-32. Um var að ræða fyrstu umferðina í sex liða úrslitakeppni en leikið er í riðlakeppni.

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk þar af tvö úr vítum þegar Kadetten Schaffhausen hafði betur gegn St. Otmar St. Gallen 33-30 á heimavelli í 23. umferð svissnesku úrvalsdeildarinnar. Kadetten Schaffhausen er langefst í deildinni með mikla yfirburði og hefur tíu stiga forskot á Pfadi Winterthur sem er í 2. sæti.

Að lokum fór Tumi Steinn Rúnarsson á kostum í sigri Alpla Hard á Handball Tirol í Austurríki. Alpla Hard sem leikur undir stjórn Hannesar Jóns Jónssonar vann leikinn 33-28 en Tumi Steinn skoraði fjögur mörk og gaf fjórtán stoðsendingar. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki fyrir Alpla Hard í leiknum.

Alpa Hard er í 2. sæti deildarinnar með 18 stig eftir 15 leiki og er stigi á eftir Ferlach.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top