Stórkostlegur Kuzmanovic í sterkum sigri Gummersbach
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Tveir leikir fóru fram í gær í þýsku úrvalsdeildinni er 23.umferð gekk í garð.

Fyrri leikur gærdagsins var er Melsungen tók á móti íslendingaliði Magdeburg. Leikurinn var jafn fyrstu mínúturnar og komst Melsungen yfir snemma leiks, en Magdeburg tók fljótt yfir. Þeir náðu að mynda sér gott forskot í fyrri hálfleik og leiddu 11–15 í hálfleik. Í seinni hálfleik juku þeir muninn jafnt og þétt og unnu að lokum örugglega 23–34. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Felix Claar með 12 mörk. Í liði Magdeburg skoraði Gísli Þorgeir 6 mörk og Ómar 3 mörk. Í liði Melsungen skoraði Reynir Þór 4 mörk og Arnar Freyr 2 mörk.

Seinasti leikur gærdagsins fór fram í Wunderino Arena þegar Kiel bauð lærisveinum Guðjóns Vals í Gummersbach í heimsókn. Leikurinn var mjög jafn í fyrri hálfleik. Gummersbach byrjaði betur og komst yfir snemma, en Kiel náði að vinna sig inn í leikinn og leiddi 15–14 í hálfleik. Í seinni hálfleik hélst leikurinn jafn framan af og fór staðan m.a. í 18–18, en þá skipti Gummersbach um gír og tók yfir leikinn með sterkum kafla. Áhlaup Kiel voru of fá og náðu þeir ekki að minnka muninn. Eftir það sigldi Gummersbach sigrinum örugglega heim, 26–34. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Dominik Kuzmanovic með 20 varða bolta sem samsvaraði 46,5 % hlutfallsmarkvörslu. Elliði Snær skoraði 9 mörk í leiknum, Teitur Örn skoraði 1 mark.

Úrslit gærdagsins:

Melsungen-Magdeburg 23-34

THW Kiel-Gummersbach 26-34

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top