Tímabilinu lokið hjá Gauta
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gauti Gunnarsson leikur ekkert meira með Stjörnunni á þessu tímabili í Olís-deild karla eftir meiðsli sem hann hlaut í tapi liðsins gegn Haukum í 18.umferð Olís-deildarinnar fyrir tveimur vikum síðan.

Þar sneri Gauti sig illa á ökkla seint í leiknum. Eftir að hafa farið í myndatöku er ljóst að Gauti verður frá keppni í 2-3 mánuði. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið.

Gauti gekk í raðir Stjörnunnar frá ÍBV fyrir tímabilið og hefur verið byrjunarliðsmaður í liði Stjörnunnar í nánast allan vetur. Hann er fjórði markahæsti leikmaður liðsins með 49 mörk en nú er ljóst að mörkin verða ekki fleiri á tímabilinu.

Stjarnan er einungis með tíu stig í deildinni eftir 19 leiki en liðið hefur tapað átta leikjum í röð. Þrjár umferðir eru eftir af deildinni þar sem Stjarnan berst fyrir lífi sínu. Gauti er annar leikmaðurinn sem meiðist illa í liði Stjörnunnar á stuttum tíma því Pétur Árni Hauksson sleit krossband í æfingarleik með liðinu í janúar.

Stjarnan fær KA í heimsókn á föstudaginn í lokaleik 20.umferðarinnar.

Hér að neðan er hægt að sjá þegar Gauti meiddist í leiknum gegn Haukum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top