Haukar urðu um helgina bikarmeistarar eftir sjö marka sigur á ÍR í úrslitaleik Powerade-bikarsins. Haukar voru 14-6 yfir í hálfleik og unnu að lokum 28-21 en Haukar spiluðu gríðarlega sterka vörn með Grétar Ara Guðjónsson í ham í markinu. Haukar fóru í gegnum FH og ÍR í undanúrslitum og úrslitum bikarkeppninnar og fengu á sig 21 mark í báðum leikjunum. Sigurjón Friðbjörn Björnsson var gestur í uppgjörsþætti Handkastsins um helgina og hann hrósaði varnarleik Hauka og þeirra taktík varnarlega í leiknum. ,,Hvernig Haukar stilltu sóknarmönnum ÍR í ákveðnar stöður, þeir voru að láta þá sækja endalaust inn á Darra og talandi um það. Ef þú ætlar að velja einhver MVP fyrir helgina þá er Darri stærsta breytan í þessu. Nú horfði ég á deildarleikinn, Haukar - FH þegar Darri var ekki með, síðasti leikurinn fyrir undanúrslitin. Þetta er bara ekki sami hluturinn. Þetta er leikbreytir fyrir Hauka að fá hann inn í vörnina," sagði Sigurjón og hélt áfram: ,,Hvernig Haukar stilltu upp vörninni gegn þessum árásum frá ÍR. Bernard sótti grimmt á þá sem er hans stíll en Haukarnir taka algjörlega af honum það að hann geti sótt utanvert. Hann kemst í einhver færi en þau voru frekar slök og Haukarnir voru klókir að fá ekki dæmt á sig víti endalaust sem er alveg klassískt á móti Bernard,” sagði Sigurjón Friðbjörn og Arnar Daði bætti við að það var einmitt það sem KA lenti í, í undanúrslitunum. Darri Aronsson hefur glímt við þrálát meiðsli undanfarin ár og var til að mynda í nokkur ár í atvinnumennsku án þess að spila leik. Hann fór í aðgerð í janúar á þessu ári og voru leikirnir í bikarúrslitahelginni hans fyrstu á þessu ári. ,,Síðan virkar ekkert hjá Bernard að fara utanvert þá fer hann inn á miðjuna og þar mætir hann Darra sem er einn besti varnarmaður Haukaliðsins og örugglega einn besti varnarmaður deildarinnar.” Haukar verða í eldlínunni annað kvöld þegar liðið heimsækir nýliða Þórs í fyrsta leik 20. umferðar Olís-deildar karla. Haukar eru í 3.sæti deildarinnar með 26 stig en Þór er í 9.sætinu með 11 stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.