Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 22.umferð fari í Olís deild karla. Stjarnan - Fram (Fimmtudag 19:30) / Sigurvegari: Stjarnan Þessi sömu lið léku lokaleik í fyrra líka sem Stjarnan vann. Eftir tapið gegn ÍBV hafa Frammarar að litlu að keppa nema treysta á að Afturelding tapi gegn Selfoss. Stjarnan er ennþá að berjast fyrir lífi sínu og hafa ekki unnið leik síðan þeir unnu Fram í fyrri umferðinni fyrir jól. Ég held að ótrúlegir hlutir gerist á fimmtudaginn og Hrannar kveðji Stjörnuna með sigri og tryggi sæti þeirra í deild þeirra bestu. HK – Haukar (Fimmtudag 19:30) / Sigurvegari: Haukar Haukar eru búnir að finna mojo-ið sitt og munu koma fljúgandi inn í úrslitakeppnina. HK verða að treysta á að Þór vinni ekki fyrir norðan til að tryggja sætið sitt í úrslitakeppninni. Haukar munu fara í Kórinn og vinna þennan leik nokkuð þægilega. ÍBV – Valur (Fimmtudag 19:30) / Sigurvegari: Valur Leikurinn sem deildarmeistaratitillinn er undir. ÍBV geta skemmt partýið á sínum heimavelli og það finnst þeim ekki leiðinlegt að gera. Andri Erlings meiddist í síðasta leik og liðið var einnig án Dags og Petar. Séu þeir allir frá sé ég hreinlega ekki hvernig ÍBV á að vinna þennan leik. Valsmenn láta ekki þetta tækifæri framhjá sér fara að tryggja fyrsta titil ársins hjá þeim en það mun ekki verða auðvelt. Þór – KA (Fimmtudag 19:30) / Sigurvegari: Þór Nágrannaslagur af bestu gerð sem við munum einnig fá á næsta ári. KA eru að eltast við heimavallarrétt í úrslitakeppninni meðan Þór geta tryggt sér inn í úrslitakeppnina á sínu fyrsta tímabili í efstu deild í talsverðan tíma með sigri og hagstæðum úrslitum í Kórnum. Ég held Þórsarar muni selja sig dýrt á heimavelli og vinna óvæntan sigur á KA sem munu gefa mönnum sem eru tæpir lengri hvíld til að vera klárir fyrir úrslitakeppnina. Selfoss – Afturelding (Fimmtudag 19:30) / Sigurvegari: Afturelding Þrátt fyrir tímabil framar vonum þá eru Selfyssingar ekki ennþá búnir að tryggja sæti sitt í deildinni. Þeir gera það hins vegar með sigri en ef þeir tapa þá verða þeir að treysta að Stjarnan sigri ekki Fram á heimavelli. Gengi Aftureldingar hefur verið virkilega slæmt eftir áramót þeir sjá þennan leik sem must win til að keyra sig í gang fyrir úrslitakeppnina. Afturelding fer austur fyrir fjall og vinnur leikinn með 1-2 mörkum í hörkuleik. FH – ÍR (Fimmtudag 19:30) / Sigurvegari: FH ÍR mætir í Kaplakrika og verða að vinna til að eiga möguleika á að halda sér í deildinni en FH-ingar eru aftur á móti í séns á deildarmeistaratitili ef Valsmenn misstíga sig í Vestmannaeyjum. Því miður fyrir ÍR-inga eru FH að spila upp á eitthvað í leiknum og munu vinna þennan leik þægilega og senda ÍR-inga niður í Grill 66 deildina. 21.umferð (4.réttir)
20.umferð (4.réttir)
19.umferð (4.réttir)
18.umferð (5.réttir)
17.umferð (2 réttir)
16.umferð (5 réttir)
15.umferð (5.réttir)
14.umferð (3 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (4 réttir)
11.umferð (4 réttir)
10.umferð (5 réttir)
9.umferð (4 réttir)
8.umferð (5 réttir)
7.umferð (3 réttir)
6.umferð (2 réttir)
5.umferð (3.réttir)
4.umferð (4.réttir)
3.umferð (5 réttir)
2.umferð (4 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.