Nýr leikmaður Þórs segist mjög spenntur fyrir þessu skrefi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Líkt og Handkastið greindi frá í síðustu viku hefur Þór Akureyri samið við Bertram Simonsen sem kemur til félagsins frá danska liðinu Lemvig. Handkastið heyrði í betra og ræddi við hann um félagskiptin til Þórs.

„Ég heyrði fyrst í Þór í kringum jólin og eftir góð samtöl við félagið og fjölskylduna mína fórum við að skoða þetta alvarlega. Þegar þeir kynntu fyrir mér hvernig þeir sjá hlutverk mitt og þróun hjá liðin var ég sannfærður um að þetta væri rétt skref,“ segir hann.

Aðspurður um þekkingu sína á íslenskum handbolta segir hann hana hafa verið takmarkaða í upphafi, en hann hafi kynnt sér hana betur eftir áhuga Þórs.

„Ég vissi ekki mikið um deildina fyrst, nema að Ísland skilar af sér mjög sterkum leikmönnum sem spila á hæsta stigi. Eftir að hafa kynnt mér deildina betur finnst mér hún mjög spennandi – mikil ákefð, sterkir einstaklingar og mikill kraftur í leiknum.“

Hann segir einnig að það hafi lengi verið draumur að koma til Íslands.

„Mig hefur alltaf langað að upplifa Ísland og náttúruna þar. Þetta er eitthvað allt annað en við eigum að venjast í Danmörku, þannig að ég er mjög spenntur að fá þetta tækifæri.“

Leikmaðurinn hefur verið hjá Lemvig undanfarin tvö tímabil þar sem hlutverk hans hefur stækkað jafnt og þétt.

„Fyrsta árið var mikið lærdómstímabil þar sem ég var að aðlagast meistaraflokki. Síðan jókst hlutverkið og á öðru tímabili hef ég verið meira inni í liðinu, sérstaklega í vörn og í 7 á móti 6. Undir lok tímabilsins fékk ég svo stærra hlutverk sóknarlega.“

En hvernig leikmenn geta stuðningsmenn Þórs átt von á?

„Þeir fá leikmann sem spilar af ástríðu og gleði og leggur allt í hvern leik. Ég er leikstjórnandi sem legg áherslu á samspil og að skapa færi fyrir aðra, sérstaklega með línumönnum. Ég tel mig líka geta lagt mitt af mörkum í vörn og í hraðaupphlaupum.“

Að lokum segist hann hlakka til að hitta stuðningsmennina í Höllinni.

„Ég vona að þeir sjái þessa hluti í leik mínum þegar tímabilið byrjar.“

Gert er ráð fyrir að leikmaðurinn mæti til landsins um miðjan júlí og hefji undirbúning með liðinu fyrir komandi tímabil.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top