Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Haukar - Afturelding (Fimmtudag 19:00) / Sigurvegari: Haukar Afturelding hefur unnið Hauka tvívegis í vetur og virðist sem Stefán Árnason þjálfari Aftureldingar sé með númerið hjá Gunnari Magnússyni. Afturelding hefur þó verið á slakir eftir áramót meðan Haukar hafa verið að spila virkilega vel og eru ríkjandi bikarmeistarar. Gunnar Magnússon hefur sýnt það áður að þegar hann fær tíma til að undirbúa leiki þá endar það oftast á einn veg og ég tel að Haukar muni vinna Aftureldingu í kvöld í fyrsta sinn á tímabilinu. FH - Fram (Fimmtudag 19:30) / Sigurvegari: Fram Eitt mesti spennandi einvígi 8 liða úrslitanna. FH hafa spilað frábærlega í vetur og voru hársbreidd frá því að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Fram aftur á móti byrjaði hægt og voru meiðsli og Evrópudeildin að þvælast fyrir þeim í upphafi tímabilsins. Fram er enginn óska mótherji fyrir FH á þessu stigi mótsins og ég held að Fram muni stela fyrsta leiknum. Þessu einvígi spái ég þó í oddaleik svo FH-ingar þurfa ekki að örvænta þó ég spái Fram sigri í þessum leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.