Staða nýliðana í dönsku úrvalsdeildinni, HØJ Elite er orðin grafalvarleg eftir tvö töp í umspilsiriðlinum um fall úr dönsku úrvalsdeildinni. HØJ Elite sem endaði í næst neðsta sæti hóf umspilsriðilinn með 0 stig á meðan Sonderjyske og TMS Ringsted hófu riðilinn með eitt stig og Nordsjaelland og Ribe-Esbjerg með tvö. Eftir tvö töp í fyrstu tveimur leikjum riðilsins sitja nýliðarnir á botni riðilsins en Sonderjyske er með tvö stig. Þar sem staða liðanna eftir deildarkeppnina vegur þyngri heldur en innbyrðisviðureign þeirra í nú ljóst að liðið þarf að minnsta kosti þrjú stig úr síðustu tveimur leikjum sínum sem eftir eru af tímabilinu ætli liðið sér að forðast það að mæta sigurvegurunum í umspilinu úr 1.deildinni. Það sem gerir stöðu liðsins athyglisverðara er að liðið hefur nú þegar tilkynnt komu nokkra leikmanna. Leikmenn sem félagið hafði nú þegar kynnt voru leikmenn á borð við Jannick Green frá PSG, Lasse Andersson frá Füchse Berlin, Axel Månsson frá Kristianstad og Ísak Vedelsbøl frá Savehof. Jannick Green hefur nú þegar verið orðaður við RK Partizan í Serbíu fari svo að HØJ falli. Neðsta liðið í umspilinu úr úrvalsdeildinni mætir annað hvort Kolding eða Aarhus í úrslitum umspilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.