
Undanúrslitin í þýsku bikarkeppninni fóru fram í Köln í dag. Í fyrri leik dagsins mættust Lemgo og Fusche Berlin. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiksins en um miðbik fyrri hálfleiksins tóku Berlínar Refirnir frumkvæðið í leiknum og leiddu 16-20 í hálfleik. Síðari hálfleikur þróaðist svipað og sá fyrri og reyndu Lemgo hvað þeir gátu að minnka muninn og náðu að koma þessu niður í eitt mark en þá gáfu Berlin aftur í og unnu að lokum þriggja marka sigur, 36-39. Lasse Andersson var markahæstur í liði Fusche Berlin með 11 mörk en hjá Lemgo var var Tim Suton markahæstur með 8 mörk. Í síðari leik dagsins mættust Bergischer og Magdeburg. Fyrirfram var búist við þægilegum sigri Magdeburg en annað kom á daginn. Staðan í hálfleik var 11-11 og allt í járnum. Það sama var uppi á teningnum í síðari hálfleik. Þegar 2 mínútur voru eftir jöfnuðu Bergischer metin í 22-22 og hvorugt lið náði að skora fleiri mörk og því þurfti að grípa til framlengingar. Bergischer hóf framlenginguna betur og voru tveim mörkum yfir þegar 90 sekúndur voru eftir. Magdeburg náðu þó að jafna metin með tveim vítaköstum í restina en þar var Ómar Ingi Magnússon að verki og þurfti því að grípa til vítakeppni. Í vítakeppninni var engin breyting á og klikkuðu bæði lið á tveim vítaköstum og var staðan því 3-3 að loknum fimm vítum á hvort lið. Ómar Ingi Magnússon klikkaði á sínu víti. Þá þurfti að grípa til bráðabana þar sem Christopher Rudeck markvörður Bergischer hetja liðsins og varði vítið frá Magdeburg meðan liðsfélagi hans skoraði úr sínu víti. Felix Claar var markahæstur Magdeburg í dag með 8 mörk en hjá Bergischer skoraði Fynn Hangstein 5 mörk. Ómar Ingi Magnússon skoraði 5 mörk, Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 3 mörk og Elvar Örn Jónsson stóð vaktina í vörninni hjá Magdeburg í dag. Arnór Þór Gunnarsson er þjálfari Bergischer en þeir leika því til úrslita í þýsku bikarkeppninni á morgun gegn Fusche Berlin. Það þarf vart að taka fram að þetta er langbesti árangur Arnórs með liðið og verður gaman að sjá hvernig þeim vegnar gegn Fusche Berlin á morgun.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.