Íslendingalið mætast í undanúrslitum í þýska bikarnum
Ronny Hartmann / AFP

Bikarúrslitahelgin í þýska bikarnum, DHB Pokal fer fram um helgina en undanúrslitaleikirnir fara fram í dag en leikið er í Lanxess Arena í Köln.

Lemgo og Füchse Berlin mætast í fyrri leik dagsins klukkan 13:45 og klukkan 16:45 mætast Íslendingaliðin, Bergischer og Magdeburg en Arnór Þór Gunnarsson er þjálfari nýliða Bergischer í þýsku Bundesligunni.

Með Magdeburg leika Ómar Ingi Magnússon, Elvar Örn Jónsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson.

THW Kiel eru ríkjandi bikarmeistarar í Þýskalandi en Magdeburg urðu bikarmeistarar árinu á undan. MT Melsungen hefur tapað tveimur síðustu bikarúrslitaleikjum.

Lemgo varð síðast bikarmeistari árið 2020 en Füchse Berlin varð síðast bikarmeistari árið 2014 í fyrsta og eina skiptið í sögu félagsins en Lemgo hefur fjórum sinnum orðið þýskur bikarmeistari og Magdeburg hefur unnið keppnina þrívegis.

Bergischer hefur hinsvegar aldrei unnið keppnina né leikið til úrslita og það er því mikið undir fyrir félagið í leiknum í dag gegn toppliði þýsku deildarinnar, Magdeburg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top