
Viktor Gísli Hallgrímsson og Sveinn Jóhannsson voru í eldlínunni með sínum liðum á Spáni og í Frakklandi í gærkvöldi. Það er nú varla frásögufærandi að Barcelona vann Herol BM. Nava í spænsku úrvalsdeildinni en liðið vinnur alla sína leiki á Spáni. Lokatölur 42-24 en Barcelona var 21-13 yfir í hálfleik. Barcelona er með 52 stig á toppi deildarinnar á meðan Nava er í 12.sæti deildarinnar með 15 stig í mikilli fallbaráttu. Viktor Gísli varði 12 skot í leiknum og var með rúmlega 50% markvörslu. Línumaðurinn Sveinn Jóhannsson var einnig í sigurliði þegar Chambéry vann þriggja marka sigur á Chartres 34-31. Sveinn Jóhannsson var hinsvegar ekki meðal markaskorara í liði Chambéry í leiknum en liðið var þremur mörkum undir í hálfleik 17-14 en sneri blaðinu sér í hag í seinni hálfleik og vann seinni hálfleikinn samtals með sex mörkum 14-20. Chambéry er í 5. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með 30 stig eftir 24 en sex umferðir eru eftir af deildarkeppninni í Frakklandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.