Bjarki Már bikarmeistari í Ungverjalandi
Ayman Aref / NurPhoto via AFP

Veszprém og Tatabánya áttust við í úrslitum ungverska bikarsins nú í dag.

Veszprém slógu út Pick Szeged í vítakastkeppni í undanúrslitum í gær og Tatabánya unnu Neka í gær.

Bjarki Már Elísson og félagar í Veszprém byrjuðu leikinn mun betur og komust strax í 3-0 en Tatabánya voru snöggir að að jafna leikinn. Það voru síðan Veszprém sem voru sterkari undir lok fyrri hálfleiksins og leiddu verðskuldað, 15-10 í hálfleik.

Veszprém héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og héldu Tatabánya í góðri fjarlægð frá sér og leyfðu leiknum aldrei að vera spennandi. Það fór svo að Veszprém unnu öruggan tólf marka sigur, 34-22 sigur og eru því ungverskir bikarmeistarar.

Bjarki Már Elísson átti frábæran leik í dag og skoraði átta mörk.

Janus Daði Smárason og félagar í Pick Szeged unnu Neka í leiknum um þriðja sætið fyrr í dag, 34-26 og tryggðu sér því brosnið þetta árið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top