Færeyjar án Skipagötunnar gegn Bosníu
Piotr Matusewicz / DPPI via AFP

Færeyska karlalandsliðið hefur orðið fyrir verulegu áfalli fyrir umspilsleiki um sæti á HM, þar sem liðið þarf að spila án síns sterkasta leikmanns.

Elias Ellefsen á Skipagøtu leikmaður THW Kiel, sem er talinn besti handknattleiksmaður Færeyinga um þessar mundir, verður ekki með landsliðinu í afar mikilvægum leikjum gegn Bosníu í umspili fyrir heimsmeistaramótið sem fram fara um miðjan næsta mánuð. Hann er enn að glíma við axlarmeiðsli sem hann hlaut skömmu fyrir jól í leik með Kiel í þýsku Bundesligunni og hefur ekki náð sér að fullu.

Þrátt fyrir meiðslin tók Elias þátt í Evrópumótinu í janúar en samkvæmt færeyska miðlinum Portal.fo er útlit fyrir að hann verði einnig frá keppni með Kiel á næstu vikum.

Þjálfararnir, Peter Bredsdorff-Larsen og Hjalti Mohr Jacobsen, hafa valið 16 manna hóp fyrir leikina gegn Bosníu. Þar eru meðal annars tveir leikmenn úr Val, þeir Bjarni í Selvindi og Allan Norðberg, sem fá tækifæri í þessum mikilvægu viðureignum. 

Þrátt fyrir skarðið sem myndast í hópnum stefna Færeyingar enn á að ná sögulegum árangri með því að komast í fyrsta sinn á HM, en verkefnið verður án efa erfiðara án Eliasar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top