
Hver hefði trúað því að fyrir bikarúrslitahelgina í Þýskalandi um síðustu helgi að Íslendingalið Magdeburg færi heim með tvö töp á bakinu. Sennilega örfáir ef einhverjir en það var hinsvegar niðurstaðan þar sem Magdeburg tapaði í undanúrslitunum gegn Arnóri Þór Gunnarssyni og lærisveinum hans í Bersgischer eftir vítakastkeppni. Liðið tapaði síðan leiknum um bronsið gegn Lemgo deginum eftir. Þjálfari SC Magdeburg, Bennet Wiegert, viðurkennir að vonbrigði liðsins eftir Final 4 helgina gætu haft áhrif á hann og leikmenn næstu vikurnar. Magdeburg fór inn í Final4 helgina í Köln sem eitt af sterkustu liðum þýska handboltans. Niðurstaðan hefur vakið áhyggjur innan félagsins, ekki síst vegna andlegs álags sem fylgir slíkum úrslitum. Þjálfarinn segir að það verði erfitt að gleyma niðurstöðu helgarinnar og að áhrifin gætu setið lengi í liðinu. „Er ég áhyggjufullur? Að sjálfsögðu. Þessi helgi mun lifa með mér í nokkrar vikur. Maður getur ekki bara þurrkað sér um munninn og haldið áfram. Það verður erfitt að hrista þetta af sér. Þegar maður nær árangri hér gleðst maður í 24 klukkustundir, í mesta lagi þrjá daga, og svo heldur maður áfram," sagði Bennet Wiegert í samtali við Sport Bild. Nú snýst verkefnið fyrir SC Magdeburg um að ná sér á strik á ný og finna taktinn aftur á meðan ljóst er að vonbrigðin frá bikarkeppninni sitja enn í liðinu. Liðið er með góða stöðu á toppi þýsku Bundesligunnar þegar sex umferðir eru eftir af deildinni og þá er liðið komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar en liðið er ríkjandi Evrópumeistarar eftir sigur gegn Füchse Berlin í úrslitaleik Meistaradeildarinnar síðasta sumar. Magdeburg heimsækir Stuttgart heim í næstu umferð þýsku deildarinnar áður en liðið mætir Janusi Daða Smárasyni og félögum í Pick Szeged í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.